Hvítlauksristaðir humarhalar

Uppskrift fyrir 4.


Innihald

Humar

1400 g stór humar

300 g smjör

4 stk hvítlauksrif

2 msk söxuð fersk steinselja

Salt, pipar

2 stk Saxaðir hvítlauks geirar

1 stk gott brauð

Salat

Aðferð

Kljúfið humarinn þegar hann er hálffrosinn og fjarlægið „skítaröndina“.  Best er að gera þetta undir mjórri vatnsbunu og þerra síðan humarinn áður en ég raða honum á bakka.


Bræðið saman smjör, pressuð hvítlauksrif og steinselju.

Hellið smjörblöndunni jafnt yfir humarhalana í skúffunum með matskeið, setjið vel af smjöri á hvern bita og kryddið síðan með salti og pipar.


Grillið í ofni við 230°C í ca. 4-7 mínútur eða þar til halarnir byrja að krullast upp, þá má taka þá strax út úr ofninum.


Gott er að setja humarinn í fat og hella restinni af smjörinu yfir.

 

Berið fram með góðu brauði og salati.