Sagan

Hafið fiskverslun var stofnuð árið 2006 af þeim Eyjólfi Pálssyni og Halldóri Halldórssyni. Fyrst um sinn eingöngu til húsa að Hlíðasmára 8 Kópavogi. Árið 2013 opnuðu þeir vinir annað útibú í Spönginni Grafarvogi. Heildverslun fyrirtækisins, fiskvinnsla og skrifstofur eru staðsettar á bryggjunni að Fornubúðum 1 í Hafnarfirði. Hafið fiskverslun er leiðandi á innanlandsmarkaði í sölu á ferskum fiski hvort sem er til neytenda, mötuneyta, grunnskóla eða annarra fiskverslana.

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

Fiskurinn

Við kaupum fisk beint af fiskmörkuðum og kaupum þann sem veiddur er af smábátum sem róa út daglega og veiða á línu. Fiskurinn er síðan verkaður og meðhöndlaður af okkur sjálfum þar sem notkun véla og tækja er takmörkuð. Það er gert til að tryggja bestu gæðin fyrir viðskiptavini okkar hverju sinni. Í fiskborðum okkar er að finna eitt mesta úrval landsins af tilbúnum fiskréttum til að ofnbaka, steikja eða grilla sem gerir fólki kleift að elda dýrindis máltíð á nokkrum mínútum. Einnig eru borðin ávallt full af ferskasta fiskfangi dagsins sem er tilbúið til meðhöndlunar.

Umhverfismál

Hafið Fiskverslun einsetur sér í allri starfsemi sinni, allt frá kaupum á fisk til framleiðslu og dreifingarfullunninnar vöru til viðskiptavina, að starfa í sátt við umhverfi sitt og náttúru landsins hverju sinni. Með stefnu sinni leitast fyrirtækið við að endurspegla umhverfisvæn sjónarmið í öllum skrefumvirðiskeðjunnar og leggja þar með ríka áherslu á bestu umgengni okkar til verndar umhverfinu og náttúru landsins.

Jafnlaunastefna

Hafið fiskverslun leggur mikla áherslu á að hjá fyrirtækinu starfi ánægðir og árangursdrifnir starfsmenn með skýra ábyrgð og góða fagþekkingu. Með hliðsjón af því meginmarkmiði er stefna fyrirtækisins að gæta jafnréttis í öllum tilfellum og greiða jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf án tillits til kynferðis, kynþáttar, aldurs, þjóðernis, trúar eða búsetu.

Gæðastefna

Hafið fiskverslun einsetur sér að framleiða ávallt vöru í réttum gæðum og vera leiðandi ígæðamálum á markaðssvæðum fyrirtækisins. Til að ná þessum markmiðum setur fyrirtækið sér starfsreglur sem byggja á góðum starfsháttum og áhættuþáttagreiningu (HACCP) þar sem öryggi og gæði vörunnar eru í fyrirrúmi. Starfrækt er innra gæðaeftirlit hjá fyrirtækinu. Lögð eru til grundvallar lög og reglugerðir um eftirlit og mat á sjávarafurðum, pökkunarreglur og/eða gæðahandbækur frá söluaðilum eða þær unnar í samráði við þá.

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=